Lengi getur gott batnað! Það gleður okkur að tilkynna hér með að tveir meistarar bætast í stóran hóp snillinga á Jólagestum Björgvins 19. desember.
Annars vegar er um að ræða Herra Hnetusmjör, einn allra heitasta listamann landsins síðustu misseri, en hann gaf einmitt út jólalagið “Þegar þú blikkar” með Björgvini í fyrra og sló það rækilega í gegn.
Og hins vegar er það sjálfur Laddi, einn ástsælasti leikari, tónlistarmaður og skemmtikraftur þjóðarinnar síðustu 50 ár.
Þeir verða sérstakir gestir á tónleikunum og bætast við ótrúlegt landslið söngvara, dansara og hljóðfæraleikara.
FORSÖLUVERÐI LÝKUR
Við tilkynnum ennfremur í dag að forsöluverðinu á tónleikana lýkur á miðnætti fimmtudaginn 17. desember. Verðið mun þá hækka úr 3.900 kr. í 4.300 kr. Við hvetjum fólk því til að hafa nú hraðar hendur og tryggja sér miða strax áður en verðið hækkar.
Gaman er frá því að segja að salan á tónleikana hefur farið framar úr öllum vonum og stefnir þetta í stærsta jólaviðburð í íslenskri tónleikasögu. Ljóst er að stór hluti þjóðarinnar hefur ákveðið að sameinast 19. desember og eiga ógleymanlega stund saman með Jólagestum Björgvins.