fbpx

27/10/2021

Jólagestir 2021 út um allan heim í beinu streymi!

Jólagestir Björgvins verða aftur sendir út í beinu streymi í gegnum NOVATV 18. desember kl. 21. Þetta þýðir að allir notið tónleikanna óháð búsetu.

Það gleður okkur að staðfesta að Jólagestir Björgvins verða aftur sendir út í beinu streymi í gegnum NOVATV. Þetta þýðir að allir notið tónleikanna óháð búsetu, en hægt er að horfa á tónleikana hvaðan sem er í heiminum í hvaða nettengda tæki sem er. Streymið sló rækilega í gegn í fyrra og því ánægjulegt að geta boðið upp á það aftur í ár.

Miðasala á streymið fer fram á Tix.is. Aðeins seinni tónleikunum verður streymt; þeir hefjast kl. 21 en útsending hefst kl 20:30 með upphitun. Hægt verður að horfa á streymið að vild í 48 klukkutíma eftir að tónleikum lýkur.

Sjáumst heima í stofu á Jólagestum Björgvins 18. desember!

Allt um streymið

Þessi síða notar vafrakökur til að tryggja bestu mögulegu upplifun.